stormur í nánd......
Gullmolinn okkar Davíðs:)
28.05.2008 10:15:58 / vindstig

hvad for helvede

Logregluofbeldi, júróvísjónskandall, gjaldþrot, himinhátt matvöruverð og púanir á knattspyrnumenn. Hvað er að verða um umheiminn????

1. Ég hef ekki enn myndað mér skoðanir á þessu myndbroti af svokölluðu lögregluofbeldi í 10/11 sem tröllreið landi og þjóð í gær. Nei það er ekki satt. Ég þarf að hafa skoðun á svo mörgu öðru að ég nenni hreinlega ekki að mynda mér skoðun á þessu líka!

2. Ég skil ekki og mun aldrei skilja af hverju við sendum alltaf lög í júrívísjón og erum handviss um að við vinnum. Pólitísk völd okkar útávið eru jafn mikil og pólitísk völd fíls í maurabúi. Þar af leiðandi munum við klárlega ekki vinna júróvísjón á næstu öldum. Það verður samt ekki tekið af Júróbandinu að þau stóðu sig rosa flott og voru landi og þjóð til sóma.

3. Við fjölskyldan erum nær gjaldþroti bara af því einu að þurfa að kaupa í matinn. Það er ekkert auðvelt að elda á hverjum degi ofan í tveggja metra háan mann sem þarf sinn skammt. Það verður einnig seint sagt að ég borði eins og smáfugl. Við höfum minnkað við okkur í ýmsum fæðutegundum sem innhalda mikið magn af sykri, fitu og kólesteróli og eru ónauðsynlegar. Það er ekki viturlegt að vera mjög nálægt mér á meðan ég er að afvenjast sykurbuzzinu þar sem kveikjuþráðurinn er álíka langur og hjá fimmföldum heimsmeistara í reykingum sem er að hætta! Ofaná skapsveiflur tengdar sykurafvenjun er ég í drápsham yfir því að ég skuli ekki léttast í samhengi við minnkun áts!

4. Hvað púanir á knattspyrnumenn varðar þá má hver og einn dæma fyrir sig bara!

Út að slá, slá eins og vindurinn...8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 22:38:42 / vindstig

Star

Sumir sigrar eru ljúfsárir. Mér þótti til dæmis misskemmtilegt að sigra gula liðið um daginn. Gaman að geta svarað vissum aðilum á þann snilldar hátt að vinna en leiðinlegt að vinna stelpurnar sem ég viðurkenni fúslega að ég sakna mjög þrátt fyrir að Stjörnustelpurnar séu snillingar. En nóg með það, 7 stig í hús og mikil gleði. Gæti reyndar alveg hugsað mér að spila meira en það er gaman að vera í liði þar sem samkeppnin er mikil. Nú er bara að hlaupa interval eins og vindurinn fram að næsta leik og gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að reyna að komast í þetta blessaða byrjunarlið. Ég er sjúk í´ða!!!!!!

Næst á dagskrá:
1. Indiana Jones
2. Júróvísjón
3. Intervalhlaup
4. Hádegissprettir
5. Sipp x 3
6. Útskriftardress
7. Útskrift
.........


Skál í boðinu!

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 13:00:14 / vindstig

9

9 er góð tala. Ég er sátt við 9. Sérstaklega þegar það eru einkunnir. Sérstaklega þegar það eru einkunnir fyrir lokaverkefni í Háskóla8)

Það er komið á hreint! Við Davíð útskrifumst saman þann 14. júní, hann úr HÍ og ég úr KHÍ. Ég fer reyndar áfram í mastersnám í menntunarfræðum-íslensku næsta haust svo skólagöngu minni virðist ekki lokið enn. Er að fá nett taugaáfall yfir því að ætla að kenna fulla kennslu, vera í mastersnámi og vera mamma en það verður örugglega bara stuð og standpína!

Gott módjó svona annars bara, var að ljúka við að sporðrenna 18. kremkexi dagsins, geri aðrir betur. Hei 18/2 er 9....

» 1 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 34162
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010