|
02.03.2010 14:42:12 / vindstig
Þegar ég tók þá afdrifaríku ákvörðun um að sækja um Kennaraháskólann var mér klappað á bakið vegna þess hve góð ákvörðun þetta væri hjá mér. Starfið myndi henta mér, biði upp á svo fjölskylduvænt umhverfi og ég fengi pottþétt ALLTAF vinnu. Það vildi nefnilega enginn vera kennari það væru svo takmörkuð laun og starfið á svo lágum virðingarstalli í þjóðfélaginu. Allt mitt nám reyndi ég að hugsa sem minnst um launin og virðinguna en sem mest um skemmtanagildið (ég er svo rugluð að ég hef gaman af náminu mínu, vinnunni minni og samskiptum við börn og unglinga og aðra kennara), fjölskylduvæna þáttinn (ég er í fríi þegar börnin mín eru í fríi) og þá staðreynd að ég fengi ALLTAF vinnu því enginn vildi vinna sem kennari. Mér fórst það ákaflega vel úr hendi að halda hugsunum mínum á jákvæðu róli, svo vel að ég hélt áfram eftir B.Ed. námið í tveggja ára meistaranám til þess að vera nú sem best í stakk búin til þess að koma til móts við þann fjölbreytta nemendahóp sem mætir kennurum samtímans. Ég fengi nefnilega ALLTAF vinnu.
Ég hef líklega haft samband við á annan tug skóla undanfarna daga vegna vinnu næsta vetur. Þetta áhlaup mitt hefur nánast engan árangur borið þar sem svo margir (sem ekki gátu hugsað sér að starfa við kennslu í góssentíðinni) snéru aftur í kennslu eftir hrunið mikla. Ég er enn án vinnu og fæ þau svör að hjá skólum sé ráðningabann vegna samdráttar í menntakerfinu (sem var svo ríkt fyrir og mátti nefnilega alveg við þessu ekki satt?). Svo kveiki ég á sjónvarps- og útvarpsfréttum og hlusta á þrætur um Icesave, hugsa með mér ÁFRAM ÍSLAND og bölva því í hljóði að ég skyldi ekki hafa lufsast í lögfræði fyrir þessum fimm árum síðan!
»
07.02.2010 10:27:06 / vindstig
Ég á uppskrift að hafraklöttum sem ég baka reglulega, hollir og góðir með spelthveiti, hrásykri, haframjöli og öðru slíku sem veldur vellíðunartilfinningu hjá húsmæðrum með átfíkn sem berjast við að ná af sér fjandans aukakílóunum. Í þeim eru einnig súkkulaðibitar því eins og alþjóð veit þá er dökkt súkkulaði með því hollara sem taugatrekkt húsmóðirin fær, svo andoxandi og blóðaukandi og allt þar á milli... Til þess að auka enn fremur á hollustugildi fyrrnefndra klatta er ég farin að setja örlítið af kanil því nýverið heyrði ég af megrunareiginleikum þess krydds. Og allt reynir maður til þess að laga línurnar (auðvitað allt nema að hætta að borða allt of mikið af nammi og djönki). Bragð klattanna breytist örlítið með þessari íbót en uppskriftin er samt sem áður sú sama sú sama!
Nýja júróvísjónframlag okkar íslendinga minnir mig óneitanlega mikið á klattana mína. Ég spyr mig hvort Örlygur Smári eigi ákveðna júróvísjónuppskrift sem hann grípur í í ársbyrjun og neglir saman framlag sitt fyrir keppnir. Sigurlag hans þetta árið var óneitanlega júrólegt, diskópopp með ágætlega grípandi bíti, ég allavega dillaði mér ósjálfrátt þegar ég heyrði lagið óma í bakrunninum í gær á meðan ég braut saman þvottinn eins og hverri húsmóður sæmir á laugardagskveldi. Og ekki skemmdi júróvísjónlega upphækkunin fyrir í miðju lagi, einkenni allra laga sem vilja eiga sér viðreisnar von í keppninni. Eitthvað fannst mér ég þó kannast við lagið en var þess þó fullviss að ég hefði ekki heyrt það áður. Ég áttaði mig snögglega þegar ég hummaði "this is my life" (framlag okkar í Júróvísjón 2008, einnig eftir Örlyg Smára) í stað "Je ne sais qua". Franska línan hefur líklega átt að vera kanillinn í júróvísjónuppskriftinni þetta árið!
Ég skora á höfunda Gleðibankans að bæta kanil í þá lagauppskrift og senda til keppni næsta ár. Þá loksins verður stuð!
»
06.02.2010 00:34:50 / vindstig
Þrátt fyrir að búa yfir þeirri vitneskju að blogg sé almennt dautt þá fann ég hjá mér nístandi þörf fyrir að drita niður smá texta eftir verslunarferð mína í Krónuna á hánnartíma í dag. Vert er að taka það fram að í dag er föstudagur og engin heilvitamanneskja fer í Krónuna einhvers staðar nálægt klukkan fimm nema húsmæður sem ekki hafa afnot af bíl fyrr en eftir rúmlega fjögur!!!
Mér gekk vel að keyra uppeftir með krúttsprengjuna vel spennta í aftursætinu og var nokkuð brött þegar ég gekk inn í Krónuna, geislandi af fegurð og þokka tveggja barna heimavinnandi húsmóðurinnar; í leggings áslettum matseðli dagsins, passlega illa farinni úlpu, loðbomsunum og með hárið svo skemmtilega tilhaft að fuglar hefðu líklega rennt hýru auga til þess með hreiðurgerð í huga væri ekki febrúarbyrjun og viðurstyggðarkuldi á Fróni! Þar sem krúttsprengjan er vaxin upp úr ungbarnastólakerrunum fékk hún að stija í barnasætinu á kerrunni og byrjaði náttúrulega á því að smakka kerruna, móður sinni til mikillar gleði og hamingju á tímum svínaflenskunnar og guð má vita hvaða annarra sjúkdóma. Ferðin í gegnum grænmetið og ávextina gekk nokkuð áfallalaust fyrir sig fyrir utan það að krúttsprengjan gerði sig líkelga til þess að ná í allt sem hendi var næst og þar sem pláss á göngunum er af skornum skammti þurfti móðirin mikla einbeitingu við að halda kerrunni frá spennandi kostum fyrir handóða. Kjötgangurinn var nokkuð notalegur yfirferðar þrátt fyrir múg og margmenni. Það var því ekki fyrr en komið var í mjólkina að virkilega reyndi á annars milda og ljúfa skapgerð húsmóðurinnar. Þar hafði amma nokkur plantað sér og sinni körfu sem geymdi barnabarn sem neitaði öllum liðleika við val á mjólkurvörum til helgarnotkunnar. Ömmugreyið var að sjálfsögðu fyrir ÖLLUM og röð var að myndast langt aftur úr öllu. Þegar krakkavargnum í körfunni þóknaðist loks að samþykkja ákveðna skyrtegund í morgunmat lufsuðust þau loks frá svo ég komst að undanrennunni og aðrir komust framhjá. Áfram hélt förin, matvælahrúgan í kröfunni óx skikkanlega og krúttsprengjan var við það að fara hamförum af æsingi yfir öllu þessu spennandi dóti í kringum hana, skemmti fólki í kringum okkur með hljóðum sem helst má heyra í þokulúðrum og nú eru að verða hennar einkennismerki. Þegar við komum að kössunum spottaði ég einn fámennan. Það vill gjarnan gerast að ég fer á kassann þar sem er styst röð en einhvern veginn klikkar allt sem klikkað getur og lengist biðtíminn samhliða því (þetta fær ég í staðinn fyrir að fá ALLTAF stæði nákvæmlega við innganginn á Kringlunni). Fröken "ein í heiminum" á undan mér tók sig til og fór að lesa yfir þriggja metra langan kassastrimilinn sinn að lokinni afgreiðslu svo ég kæmi nú örugglega ekki körfunni fram fyrir kassann og gæti örugglega ekki byrjað að tína mitt í poka. Ég var að sjálfsögðu ólýsanlega hamingjusöm með þessa athöfn þessarar annars örugglega ágætu konu. Þegar henni svo loksins þóknaðist að rúlla sér frá tíndi ég í poka eins og hríðskotabyssa til þess að leiðrétta kassaskekkjuna miklu (trúi því staðfastlega að sú athöfn að leiðrétta kassaskekkjuna eins oft og unnt er muni bæta kassakarmað mitt). Nú hélt ég að öllu væri lokið og trítlaði með körfuna mína með fjóra poka og krúttsprengjuna innanborðs út að bílnum sem ég hafði lagt passlega langt frá til þess að lenda ekki í þrengslum og veseni með að opna hurðir o.s.frv. Þegar ég kom að bílnum, enn að jafna mig eftir kassahörmungina, sá ég hvar silfurgráum toyota yaris (eða álíka dós) hafði verið lagt nánast á ská í stæðið við hliðina á mínum bíl ekki mikið lengra en 8 sentimetrum frá annarri hliðinni; að sjálfsögðu krúttsprengjustólshliðinni! Ég hugsaði dósareigandanum þegjandi þörfina þar sem ég klöngraðist öfugu megin inn í bílinn með krúttsprengjuna til þess að koma henni í stólinn. Ekki batnaði skapið við að þurfa að mjaka bílnum löturhægt út úr stæðinu vegna ótta við utaníkeyrslu. Í heimi réttlátra hefði staðið hópur útrásarvíkinga nokkrum metrum frá mér hvetjandi mig til þess að dúndra niður dósina, með útbreiddan faðminn fullan af peningum til þess að greiða fyrir skaðann. Að því loknu hefði þessi sami hópur svo boðið mér að keyra yfir sig í nafni heiðarlegra skattgreiðenda!
En ég lifi víst ekki í heimi réttlátra...
»
27.04.2009 08:55:10 / vindstig
Bjúgur í algleymingi
»
24.04.2009 10:08:19 / vindstig
Er ég vælin? Þeir sem vilja svara þessu játandi mega sleppa því að gera það. Þeir sem svara þessu neitandi og vilja meina að ég sé rosalega jákvæð og glöð og alltaf brosandi þeir mega tjá sig!
Almennri talningu er brátt að ljúka. Einn dagur í kosningar og 11 dagar í brjálæðinginn. Ég verð að finna eitthvað annað til þess að telja niður í þegar þessu líkur öllu saman. Eina sem mér dettur í hug er hvítvínsdrykkja. Hversu eðlilegt er það?!!!!
Þessa dagana má helst finna mig í Grafarvogslauginni, nánar tiltekið í barnalaugunum annað hvort inni eða úti. Sundlaug virðist vera eini staðurinn í heiminum þar sem mér líður ekki eins og tvöfalldri eimreið. Ég er m.a.s. bara létt á mér og hugguleg í vatninu. Barnalaugin verður þó að nægja þar sem hin er svo köld að ég dey úr samdráttum, stingi ég annarri ilinni þar ofaní.
Get ekki beðið eftir labbitúrum með vagninn, intervalhlaupum og súkkulaðiátsbanni!
»
21.04.2009 19:57:18 / vindstig
2 vikur eftir beibí!
»
15.04.2009 14:42:03 / vindstig
37 vikur og einn dagur. Þetter að verða nokkuð gott bara!
»
07.04.2009 16:49:17 / vindstig
36 VIKUR / 4 VIKUR EFTIR!!!
»
02.04.2009 07:48:57 / vindstig
Hef ekki fengið gubbupest síðan ég var á 8, aldursári þar til á þessari meðgöngu. Tvisvar takk fyrir, núna síðast í nótt. Huggulegt! Er svo búin á því eftir að hafa setið á baðgólfinu í einhverja tíma að ég á erfitt með gang. Frábært að fá svona á 36. viku! Mæli klárlega með því.
»
27.03.2009 09:22:16 / vindstig
34 vikur og 3 dagar - aaaaaaaalveg að verða búið. Mig dreymir reglulega fæðingu barnsins og alltaf er það strákur. Þó virðast allir í kringum mig vissir um að þetta sé stelpa. Spennan er ógurleg!
Bjúgurinn ógurlegi hefur náð undirtökum í líkama mínum og gerir það að verkum að ég er eins og blöðruselur. Svo er ég líka bara almennt feit og pattaraleg. Ég væri vænleg til áts í Andesfjöllunum ef flugvélin mín hrapaði!
»
16.03.2009 11:10:05 / vindstig
Glæstar vonir í dag:
Bridget kemst að því að egg Brooke voru óvart send í frjósemisstöð sama dag og blöndu eggja úr Taylor og sundmanna úr Nick var komið fyrir í legi Taylor sem nú er ófrísk. Það lítur því út fyrir að orðið hafi misskilningur og blandan sé eftir allt ekki egg úr Taylor og sundmenn úr Nick heldur egg úr Brooke (sem vill fá Nick aftur en lætur það vera því Taylor er ólétt) og sundmenn úr Nick. Taylor ber því barn Nick og Brooke undir belti.
Égelsketttttttttttta, bestu þættir í heimi!!!!!!
»
08.03.2009 07:43:11 / vindstig
Við Davíð fórum í bíó í gær á myndina Marley and me. Ég hélt ég væri að fara á létta gamanmynd og var þeirrar skoðunar þar til ca 40 mínútur voru eftir af myndinni. Þá byrjaði ég að gráta og grét til enda. Davíð skemmti sér hins vegar konunglega yfir eymd minni og hló að mér þessar 40 mínútur. Ég réði ekki við svona dramatík komin 32 vikur, þetta var of mikið! Og að labba í gegnum Smáralindina grátbólgin með Davíð hálfhlæjandi að mér var ekki til þess að bæta stemmninguna. Ég næstum hélt áfram að væla í bílnum á leiðinni heim þegar ég hugsaði um sorglegu atriðin úr myndinni. Hjartabilað fólk er varað við hryllingsmyndum og myndir eru bannaðar börnum innan 12, 14 og 16 ára eftir því hversu mikinn viðbjóð þær innihalda. Hvernig stendur á því að ekki er sett viðvörun fyrir óléttar konur á hápunkti hormónaviðkvæmni á myndir sem þessar!!!??!!!!
Annars eru 8 vikur eftir, jidúdda hvað ég hlakka til að sjá þennan litla brjálæðing sem er reglulega við það að brjóta rifbeinin í mér. Það verður æði að koma með grísinn heim og sjá hvernig Laugi tekur í stórabróður-hlutverkið, Hann á eftir að standa sig með prýði. Svo get ég ekki beðið eftir að komast út í göngutúra með nýja, flotta vagninn og síðar komast út að hlaupa....
»
25.02.2009 19:17:53 / vindstig
-30 vikur búnar og tveir dagar betur -10 vikur eftir!!! -kílóafjöldi eykst (tölulegar staðreyndir ekki væntanlegar) -14 vikur +/- í intervalhlaup -11 vikur í göngutúr -3 dagar í 50% vinnu -5 vikur eftir af vinnu -6 vikur í páskaegg
Vúbbídúhúhúhú...
»
17.02.2009 10:46:32 / vindstig
Tölulegar staðreyndir:
-29 vikur búnar -11 vikur í grís!!! -1 vika í flensu -1 dagur í vinnu (ætla á mörgun, rödd eða engin rödd!!) -3 dagar í endurheimt stöðvar tvö, nágranna og glæstra -7 vikur í páskaegg!
Nommm
»
08.02.2009 07:55:08 / vindstig
Hversu týpískt er það að þann sama dag og við hættum með afruglarann þá lokar vikingbay og ég missi Neighbours endanlega!??!
»
Síður: 1 2 3 ... 19
|